Hölluklútur

Einband eða fíngert tvíband 120m eins og t.d.:
Dóru Band Einband jurtalitað (25g)
Þingborgar Einband (25g)
Dís frá Uppspuna (25g)
Skýjaband frá Uppspuna, íslensk geitafiða (25g)
Gilitrutt frá Helene Magnusson (25g)
Einband frá Hespu (25g)
Einfaldur plötulopi (25g)
Eða annað band sem er með 220-240m á 50g
ÁHÖLD:
prjónar 4.5mm
heklunál 4.5mm
BYRJUN:
Fitjið upp 3 L. Prj. slétt til baka. Setjið prjónamerki (PM)
fyrir byrjun umferðar á réttu (Ré) og gott að hafa
prjónamerki á réttunni allan tímann til að ruglast ekki á
röngu (Rö) og réttu. Prjónið 4 umf. slétt og endið aftur
á PM.
Útaukningar – á réttunni.
Á röngunni er altaf prjónað slétt til baka!
1. Ré: prj. 2L sl, slá upp á, 1L sl. ( = 4 L)
3. Ré: prj. 2L sl, slá upp á, 2L sl. ( = 5 L)
5. Ré: prj. 2L sl, slá upp á, 3L sl. ( = 6 L)

MUNSTRIÐ – „Gatasnar“:
„Gatasnar“ með útaukningum:
1. umf (Ré): prj. 2 L sl., slá upp á, *2 L saman, slá
upp á*, siðustu 2 L sl.
2. umf (Rö): prj. sl til baka
3. umf (Ré): prj. 2 L sl, slá upp á, *2 L saman, slá upp
á*, siðustu 3 L sl.
4. umf (Rö): prj. sl til baka
Endurtekið þangað til 42 L eru á prjónunum.
„Gatasnar“ með úrtökum:
1. umf (Ré): prj. 2 L sl., 2 L saman,
* slá upp á, 2L saman*, siðustu 2 L sl.
2. umf (Rö): prj. sl til baka
3. umf (Ré): prj. 3 L sl., 2 L saman,
* slá upp á, 2L saman*, siðustu 2 L sl.
4. umf (Rö): prj. sl til baka
Endurtekið þangað til 7 L eru á prjónunum.
ENDIR:
1. Ré: prj. 3 L sl., 2 L saman, siðustu 2 L sl. ( = 6 L)
3. Ré: prj. 2 L sl., 2 L saman, siðustu 2 L sl. ( = 5 L)
5. Ré: prj. 1 L sl., 2 L saman, siðustu 2 L sl. ( = 4 L)
7. Ré: prj. 1 L sl., 2 L saman, siðustu 1 L sl. ( = 3 L)
Prjonið 4 umf sléttar og fellið af.

Í LOKIN:
Heklið Picot kant (Hnútakantur)
utan um klútinn:
Byrjið með því að stinga heklunálinni í jaðarlykkju,
gerið eina loftlykkju og fastalykkju í sömu L. #
Heklið 1 fastalykkju, þá 3 loftlykkjur, tengið þær í
fastalykkjuna sem þær eru heklaðar upp úr með
keðjulykkju til að mynda hnút. Heklið fastalykkju i
næstu jaðarlykkju. Endurtekið frá #.
Heklað er í eina jarðalykkju
fyrir hverjar 2 prjónaumferðir.
Slitið frá og gangið frá endanum.
Skolið úr klútnum og leggið til þerris.